Wigan og Manchester City eigast nú við í enska FA-bikarnum og er staðan markalaus þegar síðari hálfleikur var að hefjast.
Fabian Delph, leikmaður City fékk að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks fyrir ljóta tæklingu á Max Power, leikmanni Wigan.
Paul Cook, stjóri Wigan var allt annað en sáttur með tæklinguna og gjörsamlega missti sig á hliðarlínunni.
Hann hnakkreifst við Pep Guardiola, stjóra City og þurfi að skilja þá félaga að í leikmannagöngunum í hálfleik.
Myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.