El Hadji Diouf fyrrum knattspyrnustjarna og leikmaður Liverpool ætlar að skella sér í pólitík.
Diouf setur stefnuna á það að verað forseti í heimalandi sínu, Senegal.
Diouf er þekktur vandræðagemsi og hefur oft búið til læti í þeim félögum sem hann lék fyrir.
Diouf er 36 ára gamall og vill feta í fótspor George Weah sem var knattspyrnumaður en er í dag forseti Líberíu.
,,Ég sé um mig og fjölskyldu mína, í mörg ár hugsaði ég um fótbolta en nú eru það stjórnmál,“ sagði Diouf.
,,Fólk bíður eftir því að ég geri breytingar í landinu og ég er klár í það.“