Everton tók á móti Leicester City í ensku úrvalsdeildinni í gærdag en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
Það var Theo Walcott sem skoraði bæði mörk Everton í leiknum en Jamie Vardy skoraði mark Leicester úr vítaspyrnu.
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton í gærdag og hann lagði upp fyrsta mark Everton sem Walcott skoraði.