Liverpool gekk frá Manchester City í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Liverpool vann 3-0 sigur á Anfield og þarf stórslys svo liðið fari ekki áfram í undanúrslit.
Mohamed Salah, besti leikmaður Liverpool fór meiddur af velli í síðari hálfleik. Hann er þó brattur.
,,Við missum Salah í meiðsli og Henderson í bann,“ sagði Jurgen Klopp eftir leik.
,,Mo segir að honum líði vel en við verðum að bíða og sjá.“
Liverpool mætir Everton á laugardag og City í seinni leiknum næsta þriðjudag.