Joel Matip leikmaður Liverpool er líklega á leið í aðgerð vegna meiðsla í læri.
Búist er við að Matip verði ekki meira með á tímabilinu en Liverpool hefur staðfest þetta.
Matip meiddist í 2-1 sigri á Crystal Palace um helgina.
Það er því líklegt að Dejan Lovren taki sæti hans í liðinu og verði í hjarta varnarinnar gegn Manchester City á morgun með Virgil van Dijk.
Matip er á sínu öðru tímabili með Liverpool en liðið mun án nokkurs vafa sakna hans.