Pep Guardiola ætlar sér að hvíla nokkra lykilmenn gegn Manchester United um næstu helgi. Þetta segir enska götublaðið Mirror.
Guardiola ku ætla að gera það þrátt fyrir að Manchester City vinni ensku úrvalsdeildina með sigri.
Það að Guardiola hvíli nokkra lykilmenn þarf þó ekki að hafa áhrif, City með magnaða breidd.
Ástæðan er sú að City er í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar og leikur við Liverpool á miðvikudag í þessari viku og svo strax á þriðjudag í þeirri næstu.
Guardiola mun því hvíla nokkra leikmenn gegn United til að koma sér áfram í Meistaradeildinni, sigur í deildinni er í höfn sama hvort liðið vinnur eða tapar gegn United.