Snus eða munntóbak eins og við Íslendingar þekkjum það er að ná miklum vinsældum á Englandi.
Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni hafa mikið verið að nota þetta.
Jamie Vardy er einn af þeim og hann ber mikið lof á sænskt munntóbak.
,,Ég reykti stundum en þegar ég kom í Fleetwood þá var ég kynntur fyrir Snus, þetta hjálpar mér að slaka á,“ sagði Vardy.
Ensk blöð segja að Snus sé að verða afar vinsælt á meðal leikmanna í deildinni.