Luke Shaw bakvörður Manchester United var ekki sáttur með það hvernig Jose Mourinho hjólaði í sig á dögunum.
Í bikarleik gegn Brighton var Shaw tekinn af velli í hálfleik. Mourinho hakkaði hann svo í sig eftir leik.
Mourinho hefur gert þetta reglulega og hefur verið talað um einelti af hans hálfu í garð Shaw.
Shaw virðist sjálfur vera á því miðað við ensk blöð í dag.
,,Af hverju ertu alltaf að ráðast á mig,“ á Shaw að hafa sagt við Mourinho í hálfleik í sigrinum á Brighton.
Flestir telja að ef Mourinho heldur starfi sínu að Shaw verði að fara.