Ian Rush, fyrrum leikamður telur að Mohamed Salah, sóknarmaður liðsins sé á pari við þá Cristiano Ronaldo og Lionel Messi í dag.
Salah hefur verið magnaður fyrir Liverpool á þessari leiktíð og er markahæsti leikmaður ensku úrvaldeildarinnar með 28 mörk þegar níu umferðir eru eftir af tímabilinu.
Þeir Ronaldo og Messi eru bestu knattspyrnumenn heims í dag en þeir hafa einokað Gullknöttinn, undanfarin tíu ár.
„Salah hefur verið magnaður á þessari leiktíð en það sem mér finnst merkilegast við hann er hversu jarðbundinn strákur hann er,“ sagði Rush.
„Hann var ótrúlegur á móti Watford. Það gat enginn klukkað hann, hann lagði upp á liðsfélaga sína og skoraði fjögur mörk.“
„Það eru bara tveir leikmenn í dag sem spila í sama gæðaflokki og hann er að spila í þessa stundina og það eru Ronaldo og Messi,“ sagði hann að lokum.