Juventus ætlar sér að nota Blaise Matuidi, miðjumann liðsins til þess að sannfæra Anthony Martial um að ganga til liðs við félagið í sumar.
Martial verður samningslaus sumarið 2019 og hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við félagið.
Tuttosport greinir frá því að Juventus hafi nú þegar sett sig í samband við leikmanninn um að ganga í raðir félagsins í sumar.
Martial kom til United árið 2015 en hefur ekki átt fast sæti í byrjunarliðinu síðan Jose Mourinho tók við árið 2016.
Hann hefur komið við sögu í 26 leikjum með United á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað 9 mörk og lagt upp önnur 5.
Þrátt fyrir góða tölfræði þá hefur hann aðeins byrjað 16 leiki í deildinni og komið inn á sem varamaður í tíu leikjum.