Ibrahim Afellay, sóknarmaður Stoke má ekki mæta á æfingasvæði félagsins en það er Mail sem greinir frá þessu.
Leikmaðurinn hefur ekkert spilað með Stoke síðan í desember á síðasta ári þegar liðið tapaði illa fyrir Chelsea, 0-5.
Paul Lambert, stjóri Stoke er allt annað en sáttur með leikmanninn og er afar ósáttur með vinnuframlag hans á æfingum liðsins.
Hann má því ekki mæta á æfingar hjá félaginu lengur og verður að teljast ansi líklegt að hann yfirgefi félagið í sumar.