Daniel Sturridge, framherji WBA var mættur á æfingu liðsins í dag.
Hann hefur verið frá í mánuð vegna meiðsla aftan í læri en hann gekk til liðs við WBA í janúarglugganum.
Sturridge kom til félagsins frá Liverpool á láni og skrifaði hann undir saming út tímabilið við Lundúnar liðið.
Hann hefur aðeins spilað 78. mínútu fyrir félagið síðan hann kom og spilaði síðast í 0-3 tapi liðsins gegn Chelsea þann 12. febrúar síðastliðinn.
Það verður að teljast ólíklegt að hann verði klár í slaginn þegar liðið mætir Burnley um helgina en hann ætti að vera klár þegar WBA tekur á móti Swansea þann 7. apríl næstkomandi.