Paris Saint-Germain mun að öllum líkindum skipta um þjálfara í sumar og láta Unai Emery fara.
PSG er að vinna deildina í Frakklandi en það er lítil samkeppni fyrir liðið.
Vonbrigðin í Meistaradeildinni sitja í eiganda PSG og vill hann gera breytingar.
Guardian og fleiri fjalla um það í dag að PSG horfi til Antonio Conte stjóra Chelsea.
Conte er einnig í hættu á að missa starfið sitt hjá Chelsea eftir erfitt ár og baráttu við stjórn félagsins.