Manchester United íhugar nú að leggja fram óvænt tilboð í Aaron Ramsey, miðjumann Arsenal en það er Star sem greinir frá þessu í dag.
Ramsey hefur verið lykilmaður í liði Arsenal, undanfarin ár en margir miðjumenn United eru orðaðir við brottför frá félaginu þessa dagana.
Michael Carrick er að leggja skóna á hilluna í sumar, Marouane Fellaini hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning og þá fær Paul Pogba lítið að spila þessa dagana.
Þá hafa þeir Blaise Matuidi og Fred einnig verið nefndir til sögunnar sem miðjumenn sem Jose Mourinho fylgist með þessa dagana.
Fari svo að Ramsey gangi til liðs við United yrði hann annar leikmaður Arsenal á þessu ári til þess að skipta yfir til United en Alexis Sanchez kom til félagsins í janúar.