Marcos Rojo varnarmaður Manchester United hefur kvittað undir nýjan samning við félagið.
Rojo gerir samning til ársins 2021 með möguleika á öðru ári.
Rojo hefur verið meiddur undanfarið og ekki getað spilað en fær verðlaun.
,,Ég er gríðarlega ánægður,“ sagði harðjaxlinn frá Argentínu.
,,Ég hef lagt mikið á mig að koma til baka eftir meiðsli og gera mitt besta fyrir félagið.“