Stuðningsmenn Liverpool eru brjálaðir út í Topman og nýjasta bolinn sem fyrirtækið var að gefa út.
Bolurinn er rauður og með stórum 96 tölustöfum á bakinu.
Þá stendur á bolnum karma og fleiri orð sem hafa vakið stuðningsmenn Liverpool til reiði.
Þeir segja að bolurinn geri lítið úr harmleiknum á Hillsborough þar sem 96 stuðningsmenn Liverpool létust.
,,What goes around comes back around,“ stendur einnig á bolnum.
Bolinn má sjá hér að neðan en Topman tók bolinn tímabundið úr sölu í dag.