Hluti af stjórn Manchester United er sagður vera byrjaður að efast um Jose Mourinho stjóra félagsins.
United féll úr leik gegn Sevila í Meistaradeildinni á þriðjudag.
Það hefur búið til efasemdir en Ed Woodward stjórnarformaður hefur áfram trú á honum.
Woodward hefur sett mikið traust á Mourinho að koma liðinu í fremstu röð og hann hefur þá trú áfram.
Ljóst er að Mourinho mun reyna að styrkja liðið sitt í sumar en hann telur það enn ekki nógu öflugt.