Manchester United féll úr leik í Meistaradeild Evrópu í gær eftir tap gegn Sevilla.
United tapaði 1-2 á heimavelli og féll úr leik en fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli.
Eric Bailly miðvörður United tekur tapið nærri sér og óskar eftir fyrirgefninu.
,,Við biðjum stuðningsmenn okkar um fyrirgefningu eftir að hafa fallið úr leik í gær,“ sagði Bailly.
,,Síðasta kvöld var hræðilegt og við verðum að koma í veg fyrir að slíkt gerist ekki aftur. Þetta er sárt en við verðum að koma til baka og horfa fram á við.“
We ask the fans for forgiveness following our exit. Last night was terrible and we must all reflect and take note so it doesn't happen again. It's painful, but we have to get right back up, dust ourselves off, and look ahead. pic.twitter.com/knViVhAmcw
— Eric Bailly (@ericbailly24) March 14, 2018