FC Bayern er byrjað að sýna Emre Can miðjumanni Liverpool áhuga samkvæmt fréttum dagsins.
Can er samningslaus í sumar og getur því yfirgefið Bítlaborgina frítt.
Can er þýskur landsliðsmaður en hann hefur mikið verið orðaður við Juventus.
Can er 24 ára gamall en Bayern er sagt hafa verið í sambandi við hann.
Möguleiki er á að Arturo Vidal fari frá Bayern í sumar og því gæti Can fyllt hans skarð.