Leikmenn Manchester City flugu til Abu Dhabi í gær eftir sigur liðsins á Stoke.
Þar verður liðið fram að helgi í æfingum í góða veðrinu.
Stoke tók á móti Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær en leiknum lauk með 2-0 sigri gestanna.
David Silva kom gestunum yfir á 10. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Silva var svo aftur á ferðinni í upphafi síðari hálfleiks og lokatölur því 2-0 fyrir City.
City sem fyrr á toppi deildarinnar með 81 stig og hefur nú 16 stiga forskot á Manchester United en Stoke er í næst neðsta sæti deildarinnar með 27 stig.