Manchester United tók á móti Liverpool í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í gær en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
Það var Marcus Rashford sem skoraði bæði mörk United í fyrri hálfleik en sjálfsmark frá Eric Bailly reyndist eina mark Liverpool í leiknum.
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi sparkspekingur hjá Sky Sports var á vellinum í gær og virðist hann hafa verið ósáttur með úrslitin.
Þegar að hann var að keyra heim til sín lenti hann við hliðiná stuðningsmönnum United á rauðu ljósi.
Þeir byrjuðu að grínast í honum með úrslitin með þeim afleiðingum að Carragher ákvað að hrækja á þau.
Hann hefur nú beðist afsökunar á athæfinu en myndband af þessu fáránlega atviki má sjá hér fyrir neðan.