Arsenal 3 – 0 Watford
1-0 Skhodran Mustafi (8′)
2-0 Pierre-Emerick Aubameyang (59′)
3-0 Henrikh Mkhitaryan (77′)
Arsenal tók á móti Watford í ensku úrvalsdeildinni í dag en leiknum lauk með 3-0 sigri heimamanna.
Skhodran Mustafi kom Arsenal yfir snemma leiks og staðan því 1-0 í hálfleik.
Pierre-Emerick Aubameyang tvöfaldaði forystu heimamanna á 62. mínútu en Troy Deeney misnotaði vítaspyrnu fyrir gestina á 62. mínútu.
Það var svo Henrikh Mkhitaryan sem skoraði þriðja markið á 77. mínútu og lokatölur því 3-0 fyrir Arsenal.
Heimamenn sem fyrr í sjötta sæti deildarinnar með 48 stig, 8 stigum á eftir Chelsea sem er í fimmta sætinu en Watford er í tíunda sætinu með 36 stig.