Jack Wilshere, miðjumaður Arsenal gæti verið á förum frá félaginu í sumar.
Samningur hans við enska félagið rennur út í sumar en hann vill sjálfur framlengja við Arsenal.
Samningaviðræður hans við enska félagið ganga hins vegar erfiðlega en Arsenal vill lækka hann talsvert í launum.
Hann þénar í dag í kringum 125.000 pund á viku með bónusum en Arsenal vill lækka launin hans niður í 105.000 pund á viku.
Wilshere hefur verið gríðarlega mikið meiddur undanfarin ár og lítið spilað og er það ein af ástæðum þess að Arsenal vill ekki hækka launin hans.