Manchester United ætlar sér að losa sig við Luke Shaw, vinstri bakvörð liðsins í sumar en það er Mail sem greinir frá þessu.
Shaw virðist ekki vera í plönum Jose Mourinho sem vill fá Danny Rose til félagsins frá Tottenham.
United ætlar að láta Shaw fara í skiptum fyrir Danny Rose en sá síðarnefndi fær nánast ekkert að spila.
Þetta samkomulag gæti hentað báðum aðilum en þeir Shaw og Mauricio Pochettino, stjóri Tottenham unnu saman hjá Southampton á sínum tíma.
Mourinho vill styrkja varnarlínu liðsins fyrir næstu leiktíð en United þarf á kraftaverki að halda til þess að vinna deildina í ár.