Manchester United er sagt vera að klára kaupin á Samuel Umtiti, varnarmanni Barcelona en það eru spænskir fjölmiðlar sem greina frá þessu í dag.
Umtiti hefur verið sterklega orðaður við United að undanförnu en hann er með 50 milljón punda klásúlu í samningi sínum sem United er tilbúið að borga upp.
Varnarmaðurinn öflugi myndi fá talsvert betur borgað hjá United en hann gerir á Spáni og hann er sagður spenntur fyrir því að reyna fyrir sér á Englandi.
Hann kom til Barcelona frá Lyon árið 2016 og hefur verið algjör lykilmaður í hjarta varnarinnar síðan hann kom.
Jose Mourinho, stjóri United vill styrkja varnarleikinn hjá sér fyrir næsta tímabil en hann hefur verið í vandræðum með miðverði sína að undanförnu.