Það var líflaus leikur á Anfield þegar Porto heimsótti Liverpool í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.
Enda höfðu lærisveinar Jurgen Klopp slátrað einvíginu í fyrri leiknum með 5-0 sigri.
Jurgen Klopp hvíldi lykilmenn og dreyfði álaginu vel enda var liðið komið áfram.
Liverpool er nú komið í átta liða úrslit í fyrsta sinn síðan árið 2009.
Þá mætti liðið Chelsea og féll úr leik en Jurgen Klopp virðist vera að koma Liverpool á réttan kjöl í Evrópu eftir mögur ár.