Jose Mourinho stjóri Manchester United verður sérfræðingur hjá RT fyrirtækinu á HM í Rússlandi. RT er sjónvarpsstöð í Rússlandi og hefur stöðin staðfest að Mourinho verði á svæðinu.
Stöðin er umdeild en hún er oft sögð hafa tengstl við Vladimir Putin. Mourinho verður í sjónvarpssal í fimm daga og fær fyrir það meira en eina milljón dollara eða meira en 20 milljónir íslenskra króna á dag.
,,Ég er mjög ángður að ganga til liðs við RT liðið,“ sagði Mourinho.
,,Ég er spenntur fyrir því að vera á HM í Rússlandi í sumar og segja frá því sem ég veit um leikinn.“
Peter Schmeichel verður einnig á RT stöðinni en þeir léku í auglýsingu sem sjá má hér að neðan.