Síðasti spretturinn í ensku úrvalsdeildinni er í gangi og munu úrslit ráðast á næstu vikum.
Manchester City hefur nánast tryggt sér sigur í deildinni en hart er barist um næstu sæti á eftir.
Hart er barist á botni deildarinnar þar sem liðin reyna að bjarga sér frá falli.
Við á 433.is ákváðum að setja í gang létta könnun um það hver sé leikmaður ársins í ensku úrvalsdeildinni, hingað til.
Boðið er upp á fjóra kosti, Kevin de Bruyne (Manchester City), Harry Kane (Tottenham), David de Gea (Manchester United) og Mohamed Salah (Liverpool).
Könnunin fer fram í gegnum Twitter en hægt er að kjósa hér að neðan.
Hver er leikmaður ársins á Englandi hingað til?
— 433.is (@433_is) March 4, 2018