Paul Pogba ferðaðist með Zlatan Ibrahimovic til Svíþjóðar í kvöld til að opna íþróttahöll.
Zlatan hefur verið að byggja íþróttahöll í Stokkhólmi sem var opnuð í kvöld.
Hann fékk Pogba með sér í verkefnið að opna höllina en þarna var líka Henrik Larsson.
Pogba var spurður um samband sitt og Jose Mouirnho stjóra Manchester United en það hefur verið sagt slæmt
,,Ég kom bara hingað til að styðja Zlatan og ræða þessa höll,“ sagði Pogba.
United mætir Crystal Palace á mánudag í ensku úrvalsdeildinni.