Zlatan Ibrahimovic ramherji Manchester United íhugar það að snúa aftur í sænska landsliðið.
Zlatan hætti með sænska landsliðinu eftir HM í Frakklandi árið 2016.
Svíþjóð koms hins vegar inn á HM í Rússlandi og nú langar Zlatan sem er að koma til baka eftir meiðsli að koma aftur.
,,Ég sakna sænska landsliðsins,“ sagði framherjinn knái í gær.
,,Ef ég vil snúa aftur, þá geri ég það. Ég ætla að ná því að líða vel innan vallar og spila vel aftur.“
Zlatan hefur spilað fimm leiki í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili, síðast í desember gegn Burnley.