Gerard Pique, varnarmaður Barcelona hefur framlengt samning sinn við spænska félagið.
Samningurinn gildir til ársins 2022 sem þýðir að hann verður hjá félaginu næstu fjögur árin í það minnsta.
Þá er hann með klásúlu sem gerir honum kleift að yfirgefa félagið fyrir 500 milljónir evra.
Þessi þrítugi varnarmaður er uppalinn hjá Barcelona en hann gekk til liðs við Manchester United árið 2004.
Honum tókst ekki að slá í gegn á Old Trafford og snéri aftur til Spánar árið 2008 þar sem hann hefur unnið allt sem hægt er að vinna sem knattspyrnumaður.