Real Madrid tók á móti Leganes í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í kvöld en leiknum lauk með 2-1 sigri gestanna.
Javier Eraso kom gestunum yfir á 32. mínútu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Karim Benzema jafnaði metin fyrir Real Madrid í upphafi síðari hálfleiks og Gabriel skoraði svo sigurmark Leganes á 55. mínútu og lokatölur því 2-1.
Fyrri leik liðanna lauk með 1-0 sigri Real Madrid sem þýðir að Leganes fer áfram í undanúrslitin á fleiri mörkum skoruðum á útivelli og Real Madrid er því úr leik.