Jose Angel Ziganda, stjóri Athletic Bilbao gaf Kepa ekki leyfi til þess að fara í læknisskoðun hjá Real Madrid.
Markmaðurinn hefur verið steklega orðaður við Real Madrid að undanförnu.
„Ég hef ekki hugmynd um hvort hann hafi farið í einhverja læknisskoðun,“ sagði stjórinn.
„Eftir því sem ég best veit fór hann ekki neitt og hann var ekki með leyfi til þess,“ sagði hann að lokum.