Gabriel Jesus framherji Manchester City verður frá næstu vikur og mánuði eftir meiðsli sem tóku sig upp um helgina.
Jesus meiddist í markalausu jafntefli gegn Crystal Palace.
Sömu sögu er að segja af Kevin de Bruyne en ekki er óttast að meiðsli hans séu alvarlega.
Jesus grét er hann gekk af velli enda vissi hann að meiðslin væru frekar alvarleg.
City hefur staðfest að Jesus sé með sködduð liðbönd í hné en meiðsli hans verða skoðuð betur á næstu dögum.