Jesse Lingard sóknarmaður Manchester United er sakaður um framhjáhald í enskum blöðum.
Sagt er að Lingard hafi haldið framhjá kærustu sinni, Jena Frumes. Sagt er að Lingard hafi haldið frammhjá henni eftir tap gegn Manchester City á dögunum.
Ensk blöð fjölluðu um málið í gær en United vann 0-2 sigur á Everton seinna um daginn þar sem Lingard skoraði.
Hann fagnaði með því að sussa á fólk og þar var hann að benda á þessar fréttir.
,,Ekki tala svona mikið, ekki orð,“ skrifaði Lingard svo á Twitter og neitar þar með fyrir þessar fréttir.
Dont Even Talk Too Much #NoWords pic.twitter.com/7DdjhJ4qsK
— Jesse Lingard (@JesseLingard) January 1, 2018