Logi Bergmann hvetur fólk til að líta frekar á jákvæðu hliðarnar en þær neikvæðu
„Ég þekki alltof marga sem sjá glasið alltaf hálftómt. Jafnvel nokkra sem eru með það á hreinu að það sé ekki bara nánast tómt, heldur líka brotið og skítugt. Ég er orðinn svo leiður á gaurum sem eru fastir á krónísku þunglyndislegu trúnaðarstigi og þurfa endilega að láta alla vita hvað allt er ömurlegt,“ segir sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann Eiðsson.
Logi skrifar athyglisverða grein í Fréttablaðið í dag. Þar gerir hann orðræðuna á Íslandi að umtalsefni og þá neikvæðni sem stundum virðist umlykja opinbera umræðu.
Hann byrjar greinina á dæmisögu af sjálfum sér. Hann kveðst hafa vaknað um miðja nótt ekki alls fyrir löngu og fundið mikla steikarlykt. „Fyrsta sem mér datt í hug var að ég væri að fá heilablóðfall. Eða hjartaáfall,“ segir Logi sem síðar velti því fyrir sér hvort um væri að ræða botnlangakast, jafnvel krabbamein.
Eftir þetta festi Logi ekki svefn aftur og úr varð að hann fór fram úr, þó klukkan væri ekki nema hálf fimm að morgni. „Þegar ég kem upp sé ég son minn við eldavélina. Hann var sem sagt að gera enn eina árangurlausa tilraun til að snúa sólarhringnum við, eins og unglingar gera (þá tekur það tvær vikur), varð svangur og ákvað að fá sér beikon.
Meðan ég borðaði þetta líka fína beikon, því drengurinn er býsna snjall í eldhúsinu, velti ég því fyrir mér af hverju maður bregst svona við. Af hverju hættir okkur svona oft til að búast við því versta og sjá dökku hliðarnar alltaf fyrst,“ spyr Logi.
„Ég er orðinn svo leiður á gaurum sem eru fastir á krónísku þunglyndislegu trúnaðarstigi og þurfa endilega að láta alla vita hvað allt er ömurlegt.“
Hann segist þekkja of marga sem sjá glasið alltaf hálftómt, en ekki hálffullt. „Ég er orðinn svo leiður á gaurum sem eru fastir á krónísku þunglyndislegu trúnaðarstigi og þurfa endilega að láta alla vita hvað allt er ömurlegt,“ segir Logi og bætir við: „Það er líka svo merkilegt að í kringum þetta fólk eru venjulega bara vitleysingar og bjánar. En svo er pæling: Er það ekki aðeins of mikil tilviljun ef allir í kringum þig eru hálfvitar nema þú?“
Logi veltir því fyrir sér hvers vegna við verðum svona reið yfir öllu mögulegu og af hverju við látum hluti, sem jafnvel skipta engu máli, pirra okkur. Hann segir að bara síðustu daga hafi hann séð fólk taka kast yfir því að fá Morgunblaðið inn um lúguna, aðrir kvarti yfir hljóðunum í töskum ferðamanna, of mörgum forsetaframbjóðendum, lattelepjandi liði og allt sé fullt af hjólreiðamönnum í spandexi.
„Það er hægt að mæta þessu öðruvísi. Maður fær Moggann ókeypis. Ferðamenn hafa gjörbreytt efnahagnum og fyllt landið af skemmtilegu fólki. Það er frábært að allir geti boðið sig fram. Latté er sennilega það sem hefur helst hjálpað íslenskum kúabændum og fengið fullorðið fólk til að drekka mjólk (ég gleymdi reyndar þeim sem finnst algjörlega fáránlegt að fullorðið fólk drekki mjólk og þar að auki úr einhverjum sem hefur aldrei verið mamma þess). En ég get fallist á að það ættu að vera reglur um það hverjir mega klæða sig í spandex,“ segir Logi.
Í lok greinarinnar hvetur hann fólk til að líta frekar á jákvæðu hliðarnar. Það er hægt að nálgast hlutina frá fleiru en einu sjónarhorni.
„Nú er komið sumar. Það er fínt veður. Eigum við kannski í smástund að vera sátt við það að þetta er bara með bærilegasta móti? Gleðjast yfir því að þurfa ekki að skafa í einhverju fáránlegu júníhreti? Reyna að njóta dagsins og vera létt. Er það ekki eitthvað?
Ég get ekki beinlínis lofað ykkur blómum, sólskini og betra kynlífi, en – ég get lofað ykkur að ef þið farið þessa leið verður allt heldur skárra.“