Vegfarendur beðnir um að virða lokanir
Í dag á að fræsa og malbika Vesturlandsveg til norðurs frá Korputorgi. Hægri akrein verður því lokuð meðan á framkvæmdum stendur en áætlað er að þær standi yfir frá 06:00 til 17:00. Þetta segir á vef Vegagerðarinnar.
Eru vegfarendur beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.