Sáu um girðingar í kringum nýja fangelsið á Hólmsheiði
Fyrirtækið Öryggisgirðingar býður upp á heildarlausnir í girðingum, hliðum og aðgangskerfum. Fyrirtækið er umboðsaðili fyrir afar virta og leiðandi framleiðendur á þessu sviði, meðal annars Parking-Facilities á Englandi, sem framleiðir hraðhlið. Slík hlið hafa verið sett upp á ýmsum stöðum hér á landi í seinni tíð, meðal annars við nýja fangelsið á Hólmsheiði og við nýjan inngang hjá Eimskipum í Sundahöfn.
Um þessar mundir kynnir Öryggisgirðingar hf. sjálflokandi leikskólahlið, en það er nýjung sem eykur mjög öryggi barnanna okkar.
Öryggisgirðingar hf. er einnig umboðsaðili fyrir enska fyrirtækið Zaun sem framleiðir meðal annars grindur hvort sem er eftir málum eða hönnun, og er einnig með svokallaðar hljóðlausar girðingar sem henta einstaklega vel fyrir íþróttavelli. Slík girðing er kringum nýja Framvöllinn í Úlfarsárdal.
Öryggisgirðingar hf. sá um girðingar í kringum nýja fangelsið á Hólmsheiði
Öryggisgirðingar hf. er umboðsaðili fyrir ítalska fyrirtækið CAME sem er leiðandi framleiðandi í hliðbúnaði, bílastæðahliðum og aðgangsstýringum. Auk þess er fyrirtækið með hússtjórnunarkerfi, þjófavarnarbúnað, aðgangsstýringu og ljósabúnað.
Fjölbreytt járnsmíðavinna er hjá Öryggisgirðingum þar sem boðið er upp á sérsmíði á flestu sem viðskiptavininum dettur í hug, t.d. hliðum, handriðum og stigum. Auk þess fást ýmsir íhlutir til hliðsmíða, læsingar og lamir.
Þórður Antonsson er framkvæmdastjóri Öryggisgirðinga en hjá fyrirtækinu starfa níu manns.
Öryggisgirðingar hf.
Suðurhrauni 2
210 Garðabær
Sími: 544-4222, fax: 544-4221
Heimasíða: www.girding.is