fbpx
Föstudagur 06.september 2024
Fókus

Poppstjörnur síns tíma

MA kvartettinn slær í gegn – Heyrist enn í útvarpinu, áttatíu árum síðar

Kolbrún Bergþórsdóttir
Sunnudaginn 15. maí 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þær eru ekki margar íslenskar hljóðritanir frá fyrri hluta síðustu aldar sem enn eru reglulega fluttar í útvarpinu. MA kvartettinn hefur hér algjöra sérstöðu, en lög hans hafa í hartnær áttatíu ár verið meðal vinsælustu óskalaga þjóðarinnar. Kvartettinn skipuðu bræðurnir Steinþór og Þorgeir Gestssynir, Jakob Hafstein og Jón Jónsson frá Ljárskógum, en þeir stofnuðu kvartettinn – eins og nafnið gefur til kynna – í Menntaskólanum á Akureyri og fannst við hæfi að kenna hann við upphafsstafi skólans.

Björn Jón Bragason skrifar

Kvartett verður til „út úr leiðindum“

Bræðurnir Steinþór og Þorgeir voru frá bænum Hæli í Gnúpverjahreppi. Steinþór var einn vetur í skólanum, en það var 1932–1933, og lauk hann þaðan gagnfræðaprófi. Steinþór lýsti því svo að kvartettinn hafi eiginlega orðið til „út úr leiðindum“. Þeir bræður komust ekki heim í jólafrí og Jón komst ekki heldur heim í Dali. Jón var í bekk með Jakobi og til stóð að bekkurinn héldi skemmtun en skemmtiatriði vantaði. Þeir æfðu því nokkur Bellmannslög og fyrsta lagið sem þeir sungu var Gamli Nói.

Þetta þótti takast svo vel að söngurinn hélt áfram. Þeir æfðu mikið þá um veturinn, komu reglulega fram og sungu einu sinni í útvarpið. Sá söngur fór fram í gegnum síma frá Akureyri og sagði Steinþór síðar svo frá að það hefði heyrst „víst nokkurn veginn“.

Ekki höfðu þeir neinn söngstjóra, en Jón var annar bassi, Jakob fyrsti bassi, Steinþór annar tenór og Þorgeir fyrsti tenór. Allir höfðu þeir áður sungið í kórum og voru góðir söngmenn. Áður en skóla lauk sumarið 1933 héldu þeir fjórmenningar í söngför til Húsavíkur, en ekkert varð meira af samsöng þeirra að sinni. Eftir að Jakob, Þorgeir og Jón luku námi komu þeir suður og í kjölfarið var þráðurinn tekinn upp aftur. Að loknum allnokkrum æfingum austur að Hæli héldu þeir í bæinn þess albúnir að efna til söngskemmtana á nýjan leik.

Húsfyllir

Bjarni í Nýja Bíói var vinur Gests á Hæli, föður Steinþórs og Þorgeirs. Jakob sagði löngu síðar svo frá að þeir hafi gengið á fund Bjarna og beðið hann um að fá Nýja Bíó lánað „en sögðum honum jafnframt að vel gæti svo farið að hann fengi aldrei eyri fyrir það. Hann tók okkur vel og sagði okkur velkomið að fá húsið, það yrðu einhver ráð með peningana, við skyldum ekkert hugsa um það.“

Þegar kom að hljómleikunum hafði ekkert selst af miðum í forsölu. Grípum aftur niður í frásögn Jakobs: „Við sátum bakvið senuna, heldur kvíðnir og vonsviknir, héldum að við myndum verða að syngja fyrir tómu húsi. Þú getur rétt ímyndað þér hvað okkur létti þegar við heyrðum stólana falla og húsið fyllast af fólki. Og þegar við komum fram var fullt hús.“ Síðar komu þeir einnig fram í Gamla Bíói og víða út um land.

„Óvenjulega léttur gleðibragur“ þótti einkenna hljómleika þeirra félaga svo vitnað sé í frásögn Útvarpstíðinda frá árinu 1939. Sem dæmi má nefna að þegar kom að hendingunum „hátt á Ararat“ í Gamla Nóa bentu allir á Jón sem var langhæstur þeirra fjórmenninga eða einn níutíu og fjórir eða sex. Þeir voru líka ætíð smekklega til fara á hljómleikum – klæddir í kjól og hvítt.

Óvenjulega léttur gleðibragur þótti einkenna hljómleika þeirra félaga.
Í Gamla Bíói Óvenjulega léttur gleðibragur þótti einkenna hljómleika þeirra félaga.

Miklar vinsældir

Fjórmenningarnir ortu mikið af textunum sjálfir, þó aðallega Jón, sem var afbragðsskáld. Honum gekk þó fremur brösulega framan af að setja saman texta við Nocturne í c-dúr eftir Chopin. Það varð því úr að bræðurnir og Jakob lokuðu Jón inni í herbergi og tjáðu honum að hann hefði hálftíma til að gera almennilegan texta. Það tókst og hálftíma síðar var ljóðið ort: „Kom vornótt og syng þitt barn í blund.“

Margar ljóðlínur Jóns eru hreint afbragð, til að mynda þessi:

Flýðu ekki, æska,
inn í kaldan skuggann.
Sérðu ekki að sólin,
sindrar inn um gluggann?

Meðal annarra kunnra laga MA kvartettsins eru „Laugardagskvöldið á Gili“ með texta Magnúsar Ásgeirssonar og „Rokkarnir eru þagnaðir“ – við ljóð Davíðs Stefánssonar.

Vinsældirnar voru miklar og höfðu þeir ágætar tekjur af söngnum um tíma. Þá æfðu þeir daglega í fjórar til sex klukkustundir á dag og undirbjuggu hljómleika í um tvo mánuði. Carl Billich sá að mestu um útsendingar, en hann mun hafa raddsett um fjörutíu til fimmtíu lög fyrir þá félaga.

Framan af spilaði enginn undir með kvartettinum og sá Steinþór um að gefa tóninn, en frá árinu 1937 var undirleikari þeirra Bjarni Þórðarson.

Átta lög hljóðrituð

Því miður hafa aðeins upptökur af átta lögum varðveist með söng MA kvartettsins.

Hljóðritunin kom þannig til að þeir fjórmenningar buðu Útvarpinu árið 1942 að syngja inn á plötur því að kostnaðarlausu, en fátæktin var svo mikil hjá stofnuninni að ekki voru til valsar nema fyrir fjórar plötur eða átta plötusíður, enda mikill efnisskortur á miðjum stríðstímum. Af þeim sökum var tilboðinu hafnað.

Skömmu síðar komu þeir fram í útvarpsprógrammi og sungu 24 lög. Þegar fyrstu tvö lögin voru búin hringdi Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri niður eftir og mælti svo fyrir að tekið yrði upp eins mikið og hægt væri. Þetta heppnaðist svo vel að nákvæmlega voru hljóðrituð átta lög á þær átta plötusíður sem til voru, þökk sé Jónasi útvarpsstjóra. Þetta varð síðasti samsöngur MA kvartettsins, en lögin átta komu út á fjórum hljómplötum sem síðar voru endurútgefnar.

110 hljómleikar

Um þetta leyti réðst Jón frá Ljárskógum sem kennari vestur á Ísafjörð. Hann veiktist þar og lést á Vífilsstöðum 1945. Í huga bræðranna og Jakobs kom aldrei til greina að fá nýjan mann í stað Jóns og kom kvartettinn aldrei saman aftur. Alls munu þeir hafa haldið um 110 hljómleika á ferli sínum og nær alltaf fyrir troðfullu húsi.

Steinþór varð bóndi á Hæli 1937. Hann sinnti sönglistinni áfram og söng hvort tveggja með karlakórum og blönduðum kórum. Hann var einnig virkur í félagsmálum, var um áratugaskeið oddviti í sínum hreppi, formaður Landssambands hestamannafélaga og alþingismaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Suðurlandskjördæmi í hálfan annan áratug. Hann andaðist árið 2005.

Bróðir Steinþórs, Þorgeir, gerðist læknir. Fyrst að loknu prófi var hann ráðinn til Trékyllisvíkur, síðar á Kópasker. Hann stundaði frekara nám í Danmörku og var síðar læknir á Húsavík, í Neskaupstað, Hvolhreppi og Reykjavík. Hann fékkst einnig við söng á þessum stöðum. Þorgeir lést árið 2005.

„Ekkert nema ljúfar minningar“

Jakob Hafstein lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands. Hann stundaði málflutningsstörf um tíma, var framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, var framkvæmdastjóri Lithoprents og rak frá árinu 1963 offsetprentsmiðjuna Sólnaprent. Hann lést árið 1982. Jakob var spurður að því í viðtali eitt sinn hvaða hugsanir það vekti að hlýða aftur á lög kvartettsins. Hann svaraði: „Ekkert nema ljúfar minningar um samveruna með strákunum.“

MA kvartettinn er enn talin einn besti söngflokkur sem komið hefur fram hér á landi, enda allir góðir raddmenn og smekkmenn. Þeir kunnu þá list að láta ljóð falla að lagi og gera eina heild úr öllum einingum. Söngur þeirra mun án efa hljóma á öldum ljósvakans um ókomin ár.

Heimildir: „Þeir hættu þegar hæst bar“, grein Sigurðar Hreiðar í Vikunni árið 1963, sjónvarpsviðtal Helga Péturssonar við Steinþór og Þorgeir Gestssyni árið 1992, viðtal við Jakob Hafstein í Útvarpstíðindum 1939, Læknatalið og Lögfræðingatalið.

Birtist áður í DV. Hér má svo sjá umfjöllun um MA kvartettinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ljósbrot valin á BFI London Film Festival

Ljósbrot valin á BFI London Film Festival
Fókus
Í gær

Setur spurningarmerki við háttsemi læknisins sem sagði að hún gæti ekki eignast börn – Á von á sínu öðru barni

Setur spurningarmerki við háttsemi læknisins sem sagði að hún gæti ekki eignast börn – Á von á sínu öðru barni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kevin myndaði eldgosið og átti ekki von á þessu – „Ekki vera þessi manneskja“

Kevin myndaði eldgosið og átti ekki von á þessu – „Ekki vera þessi manneskja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fékk nóg af Hollywood eftir að Matthew Perry dó

Fékk nóg af Hollywood eftir að Matthew Perry dó
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ofurfyrirsætan hefur glímt við krabbamein í sjö ár – Fór mjög umdeilda leið í átt að bata

Ofurfyrirsætan hefur glímt við krabbamein í sjö ár – Fór mjög umdeilda leið í átt að bata
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu