Á laugardag var Listahátíð 2016 formlega sett, en listviðburðir munu lífga upp á borgarlífið í enn meira mæli en vant er fram til 5. júní. Á laugardaginn voru nokkrar sýningar opnaðar víða um borgina og dansganga fór fylktu liði milli Listasafns Reykjavíkur og Listasafns Íslands.
Ljósmyndari DV kíkti á nokkra af viðburðunum og myndaði prúðbúna gesti sem drukku í sig menninguna, kættust og skáluðu.
Setning Listahátíðar í Listasafni Íslands
Rokkarinn Björn Blöndal, borgarfulltrúi og bassaleikari í hinni goðsagnakenndu rokkhljómsveit HAM, mætti í Listasafnið.
Hressir í hófinu Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, ásamt Degi B. Eggertssyni borgarstjóra.
Frambjóðandi og föruneyti Margrét Sjöfn Torp, Páll Valsson, Nanna Hlíf Ingvadóttir og Andri Snær Magnason.
Á spjalli Hörður Torfason og Tómas Jónsson.
Hressir saman Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra og Robert C. Barber, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi.
Opnun Steinunnar Þórarinsdóttur í Tveimur hröfnum listhúsi
Glaðar saman Fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir og listakonan Steinunn Þórarinsdóttir.
Gjörningur við styttu Gjörningur var framinn við fögnuð viðstaddra.
Gleði Blíðskaparveður var í borginni á laugardag og gangandi vegfarandur í sólskinsskapi.
Listakonan við sköpunarverkið Verk Steinunnar stendur á horni Baldursgötu og Nönnugötu.
Opnun Gabríelu Friðriksdóttur í Gallery GAMMA
Listafólk Snorri Ásmundsson og Gabríela Friðriksdóttir.
Hárprúðir gestir Jón Proppé, Björn Blöndal og Sigurbjörg Gylfadóttir.
Við verkið Jón Proppé útskýrir verkið fyrir forsetahjónunum.
Á grænum bala Illugi menntamálaráðherra og Friðrik Sophusson, faðir listakonunnar.
Góðir gestir Kvikmyndaleikstjórinn Friðrik Þór lét sig ekki vanta.
Poppstjarna Högni Egilsson, tónskáld og söngvari.
Fjölskylda Áslaug Friðriksdóttir, systir listakonunnar, og Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, stjúpmóðir hennar.