Nokkuð hefur verið rætt um að KR megi muna sinn fífil fegurri þegar kemur að knattspyrnu og umgjörðina í Frostaskjóli. Liðið hóf Pepsi-deildina með því að gera markalaust jafntefli við Víking Reykjavík.
„KR er sennilega lítillátasta stórveldið í samanlagðri sögu stórvelda,“ segir blaðamaðurinn Jakob Bjarnar og hæðist að Vesturbæingum á Twitter.
„Ónýtur völlur, stúka að hruni komin og mídíóker lið.“ Jakob styður FH.