Gleraugnabankinn hefur verið starfandi í Kolaportinu frá árinu 1996 og hefur verið ein mest sótta gleraugnaverslun landsins til fjölda ára. Hrafn Varmdal segir að úrvalið sé mjög mikið og m.a. hafi augnlæknar vísað á Gleraugnabankann fyrir þá sem vilja ná sér í ódýr en góð gleraugu í öllum stærðum og gerðum.
„Við seljum bæði plús og mínus gleraugu í styrkleikanum 0,5 – 6,0 og höfum látið sérframleiða fyrir okkur gleraugu í umgjörðum sem aðeins fást hjá okkur. Aðeins eru þó í boði gleraugu fyrir þá sem ekki eru með sjónskekkju, “ segir hann.
Markmiðið hefur alltaf verið að bjóða upp á góð en ódýr gleraugu.
Að sögn Hrafns hóf fyrirtækið Valskaup ehf. rekstur Gleraugnabankans 1996 en árið 2013 tók Lundur ehf. við rekstrinum. „Markmið Lundar er að halda uppi gæðum og úrvali þeirra gleraugna sem einkennt hafa Gleraugnabankann í gegnum tíðina.
Gleraugnabankinn hefur verið staðsettur í Kolaportinu frá upphafi og framtíðin hans verður áfram þar. Margir vita af okkur; við höfum okkar föstu viðskiptavini og viljum halda okkur á þessum markaði. Flestir sem koma eru undrandi á því úrvali sem boðið er upp á.
Við bjóðum upp á að mæla gömlu gleraugun fyrir þá sem ekki eru vissir um sinn styrkleikaflokk í gleraugum.“
.Gleraugnabankinn býður ekki aðeins upp á gleraugu. Þar er einnig að finna mikið úrval af bolum (t-shirts) en Bolabankinn er staðsettur á sama stað.
„Það sem boðið er upp á eru t.d. hljómsveitarbolir, kvikmyndabolir og ýmsir aðrir flottir bolir. Bolabankinn er ein stærsta bolaverslun landsins og hefur yfir 300 mismunandi boli til sölu í flestum stærðum.“
Opnunartími Kolaportsins: Laugardaga og sunnudaga frá kl. 11 – 17.00.