fbpx
Fimmtudagur 05.september 2024
Fókus

Tengdasonur Íslands opnar sig um steraneyslu: Búa í 500 fermetra glæsihöll

Sér ekki eftir neinu – kynntist Söru á Facebook

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Þriðjudaginn 10. maí 2016 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rich Piana, einn af tengdasonum Íslands, er vel þekktur innan vaxtaræktarheimsins og á fyrirtækið Rich 5% Nutrition. Piana hefur talað opinskátt um steraneyslu sína en hann greindi frá því opinberlega að hafa notað stera í yfir 25 ár. Rich Piana er giftur Söru Heimsdóttur. Daily Mail fjallar um Piana og steranotkun hans.

Þá hefur DV áður fjallað um hvernig Sara kynntist Piana þegar hún sendi honum skilaboð á Facebook í fyrravor.

„Ég fæ óteljandi skilaboð á hverjum degi, mörg þúsund á viku, og ég hef engan tíma til að fara í gegnum þau og nota Facebook almennt mjög lítið. Einhverra hluta vegna poppa þessi skilaboð þannig upp að ég sé þau og við förum að spjalla mikið saman. Ég fann strax að Sara var allt öðruvísi en þær stelpur sem ég hafði kynnst hingað til,“ sagði Piana í viðtal í Morgunblaðinu um samband þeirra.

Haf áhyggjur af steranotkun Piana

Daily Mail greinir frá því að innan vaxtaræktargeirans hafi ýmsir áhyggjur og tóku nokkrir aðilar sig saman og birtu myndskeið á Youtube þar sem þeir biðja Piana að hætta að nota og hæla sterum

Piana hefur ítrekað tjáð sig um notkun þeirra á Youtbue og segist vera sáttur við ákvörðun sína að neyta þeirra. Hann mælir þó með að fólk byggi sig upp á náttúrulegan hátt.

Hjónaband í Las Vegas Rich og Sara giftu sig í Las Vegas í september síðastliðnum.
Hjónaband í Las Vegas Rich og Sara giftu sig í Las Vegas í september síðastliðnum.

Mynd: Myndir: Instagram/RichPiana/SaraPiana

Byrjaði í vaxtarækt 11 ára.

Móðir Piana stundaði vaxtarækt af miklum móð og var hann aðeins 11 ára þegar hann byrjaði að æfa líkamsrækt í Los Angeles. Þá var hann byrjaður að keppa í faginu 15 ára gamall.

Þá segir í frétt Daily Mail að Piana hafi notað stera með pásum í 27 ár.

„Ef þú hefur kost á að taka stera eða vera án þeirra, veldu þá að vera án þeirra. Það er enginn ástæða til að taka stera. Eina sem þú gerir er að skaða líkama þinn og sjálfan þig. En ef þú ákveður að keppa í faginu, þá er líklegt að þú neyðist til að taka þá. Þú hefur ekkert val.“

Þau Sara og Rich eru óárennileg.
Þau Sara og Rich eru óárennileg.

Mynd: Myndir: Instagram/RichPiana/SaraPiana

Ánægður með ákvörðun sína

Bætir Piana við að hann hafi tapað vegna þess að hann tók ekki stera. Hann hafi því neyðst til að neyta þeirra.

„Ég er ánægður með þá ákvörðun sem ég tók og hvernig líf mitt hefur spilast. Ég myndi ekki gera neitt öðruvísi,“ segir Piana og viðurkennir að hafa byrjað að neyta stera 18 ára. Hefur hann sigrað í ótal keppnum og er þekktur í faginu. Var hann krýndur herra Kalifornía. Hann hefur síðustu ár einbeitt sér að fyrirtækjarekstri.

[youtube https://www.youtube.com/watch?v=Iw2fwRoYlq4&w=560&h=315]

Búa í glæsivillu

Líkt og komið hefur fram hér að ofan er Piana gitur Söru Heimisdóttur. 18 ára aldursmunur er á hjónunum og kveðst Sara ekki finna fyrir aldursmuninum. Hefur hún tekið virkan þátt í fyrirtækjarekstri eiginmannsins.

Líkt og komið hefur fram áður í umfjöllun DV um parið hafa Sara og Piana það gott í Los Angeles en þau búa í 500 fermetra glæsivillu. Fimm svefnherbergi eru í húsinu, fimm baðherbergi og í garðinum er körfuboltavöllur.

Í viðtali við Fréttatímann sagði Sara að það væri á teikniborðinu að minnka við sig, fara í hús á einni hæð með sundlaug.

„Það er mjög dýrt að búa hérna. Við ætlum að finna eitthvað á einni hæð með sundlaug. Við þurfum ekki körfuboltavöll og garðinn notum við bara fyrir hundana,“ sagði Sara en auk þess að eiga bleikan Benz keyra þau um á Maserati-sportbíl. „Já, Rich vill alltaf eiga það flottasta og ég hef alltaf verið mikil bílakelling. Við erum alveg eins með það.“

Bleikur Benz -  Rich gaf sinni heittelskuðu glæsilegan bleikan Benz á Valentínusardaginn. -  Myndir: Instagram/RichPiana/SaraPiana
Bleikur Benz – Rich gaf sinni heittelskuðu glæsilegan bleikan Benz á Valentínusardaginn. – Myndir: Instagram/RichPiana/SaraPiana

Mynd: Myndir: Instagram/RichPiana/SaraPiana

Vilja eignast börn

Sara hefur sagt að stefnan sé að eignast barn saman.

„Það er alveg búið að ræða það, já. Ég sagði frá upphafi að ég vildi eignast fjölskyldu. Það verður kannski ekki á næsta ári eða árið þar á eftir. En það er „semi“ stutt í það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Ljósbrot valin á BFI London Film Festival

Ljósbrot valin á BFI London Film Festival
Fókus
Í gær

Setur spurningarmerki við háttsemi læknisins sem sagði að hún gæti ekki eignast börn – Á von á sínu öðru barni

Setur spurningarmerki við háttsemi læknisins sem sagði að hún gæti ekki eignast börn – Á von á sínu öðru barni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Kevin myndaði eldgosið og átti ekki von á þessu – „Ekki vera þessi manneskja“

Kevin myndaði eldgosið og átti ekki von á þessu – „Ekki vera þessi manneskja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér

Konan mín fór í háloftaklúbbinn með öðrum en mér
Fókus
Fyrir 2 dögum

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu

Margar spurningar leituðu á hugann þegar óléttuprófið reyndist jákvætt nokkrum dögum eftir að þau komu heim af sjúkrahúsinu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fékk nóg af Hollywood eftir að Matthew Perry dó

Fékk nóg af Hollywood eftir að Matthew Perry dó
Fókus
Fyrir 2 dögum

Ofurfyrirsætan hefur glímt við krabbamein í sjö ár – Fór mjög umdeilda leið í átt að bata

Ofurfyrirsætan hefur glímt við krabbamein í sjö ár – Fór mjög umdeilda leið í átt að bata
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu

Ragnhildur veit leyndarmálið á bak við betri heilsu