„Tóneyra Gumma er ekki alveg á sama stað og þekking hans á rangstöðu reglunni.“
Íþróttafréttamaðurinn Gummi Ben mætti til þeirra Svala og Svavars á útvarpsstöðinni K100,5 þar sem hann spjallaði við stjórnendur þáttarins og tók síðan lagið Undir þínum áhrifum sem Sálin hans Jóns míns gerði frægt um árið.
Á Facebook síðu Svala og Svavars segir að Gummi hafi ekki heyrt í sjálfum sér, heldur hafi hann aðeins heyrt lagið sjálft. Síminn deildi myndbandinu og sagði „Gummi Ben mætti í K100 stúdíóið hér í Kaffigarðinum okkar og tók lagið. Tóneyra Gumma er ekki alveg á sama stað og þekking hans á rangstöðureglunni.“
Dæmi nú hver fyrir sig.
Sjáðu myndbandið hér að neðan: