Nýr þáttur hefur göngu sína 4. júní
Hraðfréttamennirnir Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson munu sjá um nýjan sumarþátt á Rás 2. Þátturinn hefur göngu sína þann 4. júlí næstkomandi.
Í tilkynningu frá RÚV kemur fram að þátturinn verði á dagskrá Rásar 2 á milli klukkan 9 og 12:20. Þá munu Virkir morgnar, sem Gunna Dís og Andri Freyr hafa stýrt um nokkurt skeið, víkja fyrir þætti þeirra hraðfréttamanna. Síðasti þáttur Virkra morgna fer í loftið 1. júní.
Gunna Dís er á leiðinni í fæðingarorlof, og Andri Freyr mun snúa sér til annarra verkefna innan veggja RÚV og mun meðal annars sjá um vikulegan spjallþátt á Rás 2.