fbpx
Þriðjudagur 26.nóvember 2024
FókusKynning

Blómastofa Friðfinns – í nútíma búningi

Kynning

Tískan í brúðarvöndum og skreytingum 2016

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 13. apríl 2016 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Blómastofa Friðfinns ehf. hefur verið starfrækt síðan 1968 og er því ein elsta blómaverslun á landinu. Dýrmæt reynsla stofunnar, sem hefur safnast saman í gegnum árin og er aðalsmerki hennar, er nú í búningi nýrra viðskiptahátta þar sem verslunin sérhæfir nú í að vera eingöngu með net- og símaþjónustu.

Að sögn Jennýjar Ragnarsdóttur, eiganda Blómastofu Friðfinns, er stofan í beinu sambandi við blómaheildverslun: „Við erum því ætíð með fersk blóm og engin hætta á að viðskiptavinir okkar fái blóm sem hafa staðið lengi. Við höldum áfram að kappkosta að veita bestu og sem víðtækasta þjónustu í tengslum við blóm og skreytingar. Blómastofan er með blóm á boðstólum fyrir hina ýmsu viðburði og tilefni; svo sem brúðkaup, fæðingar, afmæli, ráðstefnur, útskriftir og ótal margt fleira.“

Tískan í brúðarvöndum og skreytingum 2016

„Ef hægt er vil ég fá að sjá brúðina áður en ég útbý vöndinn hennar, og helst kjólinn líka, til þess að fá tilfinningu fyrir persónunni og stílnum hennar. Í ár er brúðarblómatískan gjarnan með gamaldags blæ, stór blóm og skartgripi má jafnvel þræða inn í vöndinn. Vinsælt er að hafa einhvern hlut í vendinum, t.d. eitt stórt skart sem hefur persónulega merkingu og hefur verið í fjölskyldunni, eins og t.d. gamli gullhringurinn hans afa. Þannig eru blóm og skart tengd saman. „Boho“ eða „vintage“ eru lykilorð tískunnar í ár. Villt og látlaus. Eitt stórt blóm í hárinu.
Um þessar mundir eru líka flæðandi, stórir vendir að komast í tísku. Þykkblöðungar eru líka mjög vinsælir í dag, í brúðarvöndum og í vasa á borði eða sem hluti annarra skreytinga. Mömmublóm eru vinsæl; þá er fínleg blómaskreyting um úlnlið mæðra brúðhjónanna.
Orkídeur og calla blóm eru ekki lengur vinsælar blómategundir í brúðkaupum og sjást hvergi í dag. Svona breytist tískan!“

Fjögur brúðkaupsþemu

„Brúðkaupsþemu skiptast gróflega niður í fjóra mismunandi stíla sem er notast við í blómaskreytingum og kjólum og er látnir halda sér alla leið, þ.e. í veislunni og kirkjunni.

Rómantíski 18. aldar stíllinn:

Hér er stemningin sveitaleg og samsetning blóma er villt og rómantísk. Jafnvel notast við ögn sérkennileg blóm og vöndurinn er bundinn lauslega saman.

Ljóðræni stíllinn:

Þessi stíll er vinsæll hjá ferðamönnum sem koma til Íslands og gifta sig hér á landi. Hér eru blómin í andstæðum litum og brúðhjónin eru ekki alltaf mikið uppáklædd. Allt er hrátt en þó fínlegt. Í brúðarvendinum er t.d. eitt stórt blóm í miðjunni og svo eru tínd blóm í stíl við það. Grænir og glaðlegir litir eru ríkjandi en fara eftir árstíð. Húmor eða hátíðleiki leggja línurnar.

Listræni stíllinn:

Andstæður eru í lykilhlutverki í þessum stíl. Dökkt og ljóst. Listrænt og fínlegt yfirbragð sem fylgir árstíð. Sérstök blóm eru valin; t.d. stórar, rauðar rósir ef um jólabrúðkaup er að ræða eða svokölluð ömmublóm á sumrin. Brúðarvöndurinn er t.d. byggður upp á löngu skafti sem er vafið með elegant blómum. Klæðaburður brúðhjóna er oft svolítið flippaður.

Náttúrulegi stíllinn:

Hér er enginn hátíðleiki á ferð og blómin í vöndinn eru tínd úti við, sumir leita í skóginn til að ná í greni og strá. Blóm sem ekki eru ræktuð í gróðurhúsi. Villt yfirbragð. Litatónar valdir eftir árstíð.
„Og svo er vert að hafa á bak við eyrað að það þarf ekki alltaf sértök tilefni til að gefa blóm,“ segir Jenný brosandi að lokum. „Það gleður fólk alltaf jafn mikið að fá blóm að gjöf.“

Blómastofa Friðfinns ehf.
Netfang: blomabud@blomabud.is
Sími: 533-1099.
Erum á Facebook.
www.blomabud.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
27.03.2024

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“

„Algjört saunaæði runnið yfir landsmenn“
Kynning
19.03.2024

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com

Þú færð allt fyrir ferminguna á Boozt.com
Kynning
29.10.2023

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“

Flýgur með Íslendinga til paradísarinnar Punta Cana í myrkasta skammdeginu – „Ég skildi við kallinn en ekki landið“
Kynning
27.10.2023

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni

Jólabjór og opið til miðnættis í Nýju Vínbúðinni