Nýr körfubíll sem kemst upp í 22 metra vinnuhæð
AÞ-þrif sérhæfir sig í iðnaðarþrifum fyrir byggingaverktaka, gluggaþvotti fyrir fyrirtæki og einstaklinga ásamt almennum þrifum. „Við bjóðum upp á fyrirmyndar þjónustu og há gæði,“ segir Arnar Þorsteinsson, eigandi og framkvæmdastjóri AÞ-þrif. AÞ-Þrif ehf er ungt og framsækið hreingerningafyrirtæki sem formlega tók til starfa í júlí 2006 en fyrir þann tíma hafði fyrirtækið starfað um nokkurra ára skeið á nafni Arnars Þorsteinssonar sem er stofnandi og aðaleigandi fyrirtækisins.
Hjá AÞ-Þrifum starfa nú yfir 100 manns og þrátt fyrir ungan aldur hefur fyrirtækið nú þegar fest sig í sessi sem eitt öflugasta hreingerningafyrirtæki á landsins. „Að baki fyrirtækinu stendur þéttur hópur fólks sem hefur byggt fyrirtækið upp og gert það að því sem það er í dag,“ segir Arnar. „Við höfum víðtæka reynslu af þrifum fyrir allar stærðir af fyrirtækjum. AÞ-Þrif ehf. er fyrirtæki sem hefur metnað, gæði og umfram allt framkvæmdagleði í sínu farteski,“ bætir hann við.
„Við vorum að fjárfesta í nýjum körfubíl sem kemst upp í 22 metra vinnuhæð fyrir gluggaþvottadeildina sem mun vera afar hentugt fyrir okkur sem og viðskiptavini okkar þar sem nú getum við sinnt útköllum sem kalla á að komast í þessa vinnuhæð mun fyrr og viðskiptavinir okkar þurfa ekki að bíða eftir að við leggjum inn pöntun hjá öðrum aðila fyrir slíkum bíl,“ segir Arnar. Fyrirtækið er til húsa í Garðabæ, á Skeiðarási 12, og er opnunartími skrifstofunnar alla virka daga frá kl. 09.00 til 16.00 en útköllum er sinnt eftir þörfum viðskiptavina að sögn Arnars.
AÞ-Þrif ehf
Skeiðarási 12
210 Garðabæ
Sími: 517-2215
www.ath-thrif.is