Myndskeið móðurinnar hefur slegið í gegn
Meðfylgjandi myndband hefur slegið í gegn á veraldarvefnum undanfarna daga en þar er lítilli stúlku tjáð að faðir ætlaði að fara í kynleiðréttingu. Einlæg viðbrögð hennar hafa snert við mörgum.
Shalee Ellis er móðir Laylu sem er 6 ára en hún ákvað að fara með dótturina í ísbíltúr og segja henni um leið að bráðum myndi pabbi hennar vera „hún“ en ekki „hann.“ Mallory, faðir Laylu kom út úr skápnum sem transkona fyrr á árinu og hefur Shalee ávallt stutt hana.
„Pabbi var ekki hamingjusamur með að vera strákur. Þess vegna ætlum við að hjálpa honum að verða manneskjan sem heilinn hans og hjartað hans segja honum að hann sé í raun og veru,“ segir Shalee við litlu stúlkuna og bætir við að mamma og pabbi hafi nýlega farið og keypt glæný stelpuföt á pabba, ásamt förðunarvörum.
„Þannig að núna ætlar pabbi að byrja að mála sig og ganga í stelpufötum og kanski láta hárið vaxa. Hvað finnst þér um það?“ spyr hún Laylu þvínæst.
Sú stutta þarf ekki að hugsa sig lengi um áður en hún kemur með afskaplega einfalt og hnitmiðað svar sem sýnir svart á hvítu að börn elska foreldra sína skilyrðislaust – sama hvað á gengur.
Hér má sjá umrætt myndband.
[youtube https://www.youtube.com/watch?v=BSOek-YjvGM&w=600&h=360]