Á vormánuðum 2014 var skráður nýr og spennandi kafli í sögu Austur Indíafjelagsins þegar staðurinn var stækkaður og endurgerður. Með þeim hætti var haldið upp á tuttugu farsæl ár í rekstrinum.
Chandrika Gunnarsson, sem rekur Austur Indíafjelagið, fræðir okkur um það að í tilefni tuttugu ára afmælis veitingastaðarins hafi þau hjónin farið til Indlands til að kaupa allt efni til endurbótanna auk ýmissa fallegra og einstakra hluta til þess að prýða staðinn: „Það gerðum við í samvinnu við enskan arkitekt sem þekkir mjög vel til indversks kúltúrs.
Það var okkur mjög mikilvægt að arkitektinn væri vel tengdur Indlandi. Allur viður hér innandyra kom frá Indlandi og er úr 150 ára gömlu húsi í Mumbai, og úr honum eru t.d. borðplöturnar og hurðirnar. Þar fengum við líka öll ljósin í loftinu. Við leituðumst við að hafa allt eins ekta og við gátum, sem næst upprunanum. Stækkunin gerði okkur kleift að opna setustofu fyrir 16–18 manns, en hún er afar notaleg með bróderuðum silkipúðum og dulúðugu rökkri. Gestum okkar þykir huggulegt að fá sér fordrykk þar eða jafnvel njóta eftirrétta og kaffis í mjúkum sætunum.
Við vildum, í tilefni afmælisins, bjóða gestum okkar upp á betrumbætt umhverfi. Hugmyndin er að þegar fólk stígur inn til okkar þá sé engu líkara en það sé komið til Indlands, upplifunin er slík,“ segir Chandrika brosandi. „Allt er öðruvísi og framandi; seiðandi ilmurinn, þjónustan og stemningin yfirhöfuð. Fólk kann líka einstaklega vel að meta næðið sem það hefur hér til þess að njóta máltíðar. Nú getum við líka stúkað af með fallegu hurðunum frá Indlandi og með þeim hætti myndað notalegan 25 manna sal, ef óskað er eftir því.“
„Það eru mjög fá veitingahús hér á landi sem hafa verið rekin á sömu kennitölu frá upphafi og við erum stolt af því að það er okkar veruleiki. Austur Indíafjelaginu hefur ávallt gengið vel og þökkum við það fyrst og fremst tryggum gestum í gegnum tíðina. Já, við kjósum að nota orðið gestir en ekki viðskiptavinir. Það endurspeglar gestrisni indversku þjóðarinnar og við leggjum höfuðáherslu á gestrisni hér á veitingastaðnum okkar. Velgengni okkar felst ekki hvað síst í því að við kunnum að meta hvern einstakan gest. Fagmannlegu indversku þjónarnir sinna gestum okkar, en þeir hafa mjög mikla reynslu í starfi. Við erum enn með sömu kokka og hafa verið með okkur frá fyrsta degi, við vinnum öll saman eins og samheldin fjölskylda.
Um þessar mundir stendur Holi-hátíðin yfir, sem er bæði uppskeruhátíð og hylling litanna. Við erum því með sérstakan matseðil í gangi af því tilefni; tígrisrækjur í forrétt, lambakjöt, kjúkling og grænmetisrétt í aðalrétt, borið fram með hrísgrjónum og naan-brauði og svo lýkur máltíðinni með eftirrétti. Allt krydd sem notað er á Austur Indíafjelaginu er innflutt af okkur og blandað á staðnum af kokkunum upp á indverskan máta – á hverjum degi er útbúin fersk blanda. Hreinn og tær ferskleiki er lykillinn að dásamlega matnum okkar. Í eldhúsinu okkar eru engar sósur öðruvísi en þær sem eru útbúnar sérstaklega fyrir hverja einustu pöntun.
Það er aldrei í boði hjá okkur að veita miðlungs þjónustu eða mat. Rekstur okkar stendur og fellur með því að gestirnir okkar komi aftur og aftur. Hver og einn einasti þeirra er afar mikilvægur. Þeir hafa verið besta auglýsing Austur Indíafjelagsins frá upphafi og kynnt orðspor okkar víða. Fyrir það erum við mjög þakklát,“ segir Chandrika Gunnarsson og býður gesti innilega velkomna.
Opnunartími:
Sunnudaga til fimmtudaga kl. 18.00–22.00. Föstudaga og laugardaga kl. 18.00–23.00
Austur Indíafjelagið
Hverfisgötu 56
101 Reykjavík
Sími: 552-1630
austurindia@austurindia.is
www.austurindia.is