Kökulist Hafnarfirði og Reykjanesbæ
„Þetta er belgísk súkkulaðiterta, safarík, blaut og með kókosfyllingu. Hún er hrikalega góð, bæði sem konfektmoli með kaffinu og einfaldlega sem eftirréttur með ís eða rjóma. Þessi terta þolir að standa alla veisluna.“
Þetta segir Jón Arilíusson hjá Kökulist en þessi girnilega súkkulaðiterta er óneitanlega þægileg í meðförum og gleður augu veislugestanna allan tímann. Jón bendir líka á að súkkulaðigerð sé á meðal þess sem Belgar eru þekktastir fyrir, sem ætti að vera góð vísbending um gæði tertunnar og hvað hún er gómsæt. En meðfærileikinn er þó líklega það sem gerir hana einstaka:
„Í staðinn fyrir að flotti eftirrétturinn þurfi að standa í kæli alla veisluna getur tertan notið sín í veislusalnum og glatt augu gesta áður en þeir gæða sér á henni. Þetta einfaldar mjög flækjustigið hjá þeim sem halda brúðkaupsveislu,“ segir Jón.
Kökulist er auk þess með allt annað í brúðkaupsveisluna, til dæmis snittur, grillspjót, bakkelsi og margt fleira, og veitir heildstæða veisluþjónustu fyrir brúðkaup.
Kökulist ehf.
Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar og
Valgeirsbakarí, Hólagötu í Reykjanesbæ
Sími: 555-6655 og 662- 5552
kokulist@kokulist.is
Á heimasíðunni www.kokulist.is eru ítarlegri upplýsingar um veislurétti í máli og myndum.